skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegi forseti. Mér þætti vænt um að sjá eitt mál, eina skattbreytingartillögu frá hæstv. ríkisstjórn sem einfaldar skattkerfið. Þetta er allt byggt á því að flækja það, flækja skattkerfið og auka báknið. Það eru meira að segja breytingartillögur hér í fjárlögunum um að hækka framlag til Skattsins af því að það þarf að fjölga starfsfólki hjá Skattinum út af öllum þessum skattkerfisbreytingum. Hagræðingartillögurnar sem þjóðin sendi inn voru settar til hliðar en tillögurnar frá stjórnkerfinu koma óritskoðaðar hingað beint inn þar sem stjórnkerfið er að láta liðka fyrir sjálfu sér. Stjórnkerfið er að senda hér þegar það hefur tapað fyrir yfirskattanefnd að þá eigum við að breyta því. Það eru einu tillögurnar sem hæstv. ríkisstjórn og Viðreisn fylgja eftir hér í þinginu.