skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Í ljósi ummæla hæstv. utanríkisráðherra, þar sem hún segir að tilgangurinn sé að ná tökum á vöxtum og verðbólgu með aðgerðum þeirra og að ná tökum á ríkisfjármálunum, þá langar mig að benda á að t.d. í því máli sem við ræðum hér á eftir, varðandi hækkun skatta á leigutekjur einstaklinga, hafa umsagnaraðilar vakið athygli á því að útreikningar bendi til þess að leiguverð hækki og að áhrif skattabreytinganna á vísitölu neysluverðs hafi ekki verið metin að fullu. Eins og Samtök verslunar og þjónustu bentu á í sinni umsögn er leiguverð lykilmælikvarði í verðbólgu sem hefur áhrif á vaxtastig og verðtryggða fjármögnun. Þannig er um að ræða enn eitt skattahækkunarfrumvarpið, þar sem ólíklegt má telja að áætlaðar tekjur standist en neikvæð áhrif breytingarinnar gætu orðið talsverð. Þannig að ef hæstv. utanríkisráðherra er alvara með tilganginn þá bið ég hann og alla hér að samþykkja ekki þessa skattahækkun. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)