157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[12:43]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé ekki hægt annað en að vitna í orð hæstv. utanríkisráðherra. Nú erum við komin nýyrði, hækkun skatta er tiltekt, þannig að þegar forystumenn Viðreisnar segja við kjósendur: Við ætlum ekki að hækka skatta, þá eru þeir að meina að þeir ætli að hækka skatta undir nafni tiltektar. Og þegar forystumenn Viðreisnar segja: Við ætlum að einfalda, virðulegur forseti, þá eru þeir t.d. að flækja innheimtukerfi þegar kemur að ökutækjum eins og kílómetragjaldið sem mun kosta atvinnuvegina 1,6 milljarða á ári í flóknu regluverki. Og að halda því fram að þeir hafi tekið við erfiðu búi er auðvitað fráleitt. Það er miður eftir alla umræðuna í hv. fjárlaganefnd að hér komi upp þingmenn sem eru ekki enn þá búnir að ná því að fjáraukalögin eru ekki í samræmi við það sem er í lögunum um hlutverk fjáraukalaga, þannig að sú útgjaldaaukning sem er þar samræmist ekki því hlutverki sem er skrifað út í greinargerðinni. (Forseti hringir.) Eftir stendur því að tekjurnar jukust um 73 milljarða en hallinn var áætlaður 63 og við erum að tala um (Forseti hringir.) það að að öllu óbreyttu, ef menn hefðu framfylgt lögunum um opinber fjármál, þá væru hér hallalaus fjárlög á þessu ári.