157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[12:44]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Hingað kemur hæstv. utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar með frasa, með innihaldslausa frasa alveg eins og við urðum vitni að í kosningabaráttunni. Ég óttast að hæstv. ráðherra sé of upptekin við að skrifa undir samkomulag í útlöndum, að hún viti ekki raunverulega hvað er að fara í gegnum þingið, því ekkert af því sem við vorum að fjalla um í gær né af því sem við erum að greiða atkvæði um núna er í einhverju samræmi við það sem hæstv. utanríkisráðherra var að lýsa. Hér eru skattahækkanir á skattahækkanir ofan og þetta er að bitna á millistéttinni númer eitt, tvö og þrjú. Það er það sem þessi ríkisstjórn er að gera.