skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Við erum í óðaönn að opna jólapakka hæstv. ríkisstjórnar, vinstri stjórnarinnar, og okkur verður um og ó þegar við opnum hvern pakkann á fætur öðrum. Við höfum undanfarna daga opnað pakkann með kílómetragjaldinu, ekki lest mönnum nú vel á það. Við opnuðum vörugjaldapakkann, þá fór gamanið að kárna. Við opnuðum pakkann um afnám heimildar til nýtingar á skattþrepum milli hjóna og sambúðarfólks; því fólki leist illa á það. Við opnuðum pakkann um niðurfellingu heimildar til nýtingar persónuafsláttar til fjármagnstekjuskatts og í dag höldum við áfram að opna jólapakkana frá ríkisstjórninni. Og hvað er í þessum pakka? Til dæmis það að nú á að hækka skatta á leigutekjur um helming. Fólk sem er að reyna að eignast sína fyrstu íbúð og leigir hana út — skattarnir á þetta fólk, af þessum leigutekjum, eru að hækka um helming. Það er komið nóg, frú forseti. Við viljum ekki fleiri jólapakka frá þessari ríkisstjórn.