157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[12:48]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Fyrir síðustu kosningar töluðu allir flokkar mjög skýrt um það að brýnasta úrlausnarefni samtímans og stjórnmálanna á því kjörtímabili sem nú er tiltölulega nýhafið væri að ná niður vöxtum og verðbólgu. Allir flokkar voru sammála um að besta kjarabótin fyrir heimili og fyrirtæki væri að ná niður vöxtum og verðbólgu. Svo er spurt hér: Hvenær hófst vaxtalækkunarferlið? Og við erum að fara niður verðbólgukúfinn. Hvenær hófst vaxtalækkunarferlið, er spurt. Hvenær hófst vaxtahækkunarferlið sem við erum núna að vinna okkur út úr? (Gripið fram í.) Einmitt, það eru alltaf einhverjar afsakanir til þegar Sjálfstæðisflokkurinn hér í vesturhelmingi ... [Háreysti í þingsal.]

(Forseti (ÞSv): Forseti biður þingmenn um að gefa ræðumanni hljóð.)

Virðulegi forseti. Ég ætla að vekja athygli þingheims á því hvað vesturhluti þingsalarins er alltaf órólegur. Hann vill kannast við ábyrgð sína þegar það hentar en ekki þegar það hentar ekki. (Forseti hringir.) Vaxtastigið og verðbólgan skreið endalaust upp í valdatíð Sjálfstæðisflokksins. Vextirnir og verðbólgan sem við erum að ná niður er á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins.