skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Í þessu frumvarpi sem við erum að fara að ræða hér er margt jákvætt og við munum að sjálfsögðu greiða atkvæði með því hér á eftir í atkvæðagreiðslunni. En það er hér enn ein skattahækkunartillagan sem er alveg óskiljanleg, virðulegur forseti, að hækka hér frítekjumark tekjuskatts af leigutekjum úr 25% í 50%. Þetta er óskiljanleg ráðstöfun, sér í lagi vegna þess að það er algjörlega ljóst að hún mun ekki ná markmiðum sínum. Þetta mun hækka leiguverð, virðulegur forseti, sem mun fara í vísitöluna og hækka verðbólgu. Það er það eina sem þetta mun gera. Og talandi um það eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson kom inn á áðan, að brýnasta úrlausnarefnið væri að ná niður vöxtum og verðbólgu, þá er það nú þannig að (Forseti hringir.) 143 milljarða kr. útgjaldaaukning er ekki til þess fallin að gera það enda versna horfur, eins og kemur fram í 2. umræðu í fjárlögum (Forseti hringir.) úr 3,2% í 3,5% á næsta ári. Verðbólgan er á uppleið, virðulegur forseti.