skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Þessi skattapakki ríkisstjórnarinnar á það sameiginlegt með öðrum skattapökkum hennar að hann felur ekki aðeins í sér auknar álögur á almenning í landinu heldur einnig mjög neikvæða hvata. Það á ekki hvað síst við í áformunum um að hækka skatta á leigutekjur sem augljóslega munu hækka leiguverð og augljóslega auka verðbólgu. Sérkennilegast af öllu er þó að hlýða á rökstuðning háttvirtra stjórnarliða fyrir því að það beri að gera þetta, en það mun vera til þess að hvetja fólk til þess að leigja ekki út húsnæði heldur fjárfesta í einhverju öðru. Hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar útskýrði þetta fyrir okkur hér í gærkvöldi með því að benda á það að það þyrftu allir að eiga húsnæði, og af hverju ættu menn þá að vera að græða á því að leigja út húsnæði?
Frú forseti. Það þurfa allir að borða. Af hverju eiga menn að græða á því að vera að selja mat? Það þurfa allir að ganga í skóm. Eiga menn að græða á því að selja skó? Það er að koma á daginn, frú forseti, að þetta er ekki aðeins vinstri stjórn. Hún stýrist af sósíalisma. Það þarf ekkert að stofna nýjan vinstri flokk í Reykjavík eða annars staðar. Þessi ágæta hæstv. ríkisstjórn sér bara um það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)