skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Ég biðst afsökunar fyrir fram en það var bara boðið hér upp í ákveðinn dans þegar við erum að ræða vaxtamál þjóðarinnar og það sem gerðist. Það sem gerðist í Covid var gríðarlegt áfall fyrir ríkissjóð, 183 milljarða beinn kostnaður. (Gripið fram í: Meira.) Beinn kostnaður ríkisins. Síðan var hann miklu meiri ef við tökum allt heila galleríið. Vaxtalækkanir urðu hér vegna Covid, aðfangakeðjur rofnuðu í heiminum við innrás Rússa í Úkraínu. Það er bara þekkt að það kom utanaðkomandi verðbólga í gegnum það. Jarðhræringar og Grindavík töfðu ferlið örugglega um heilt ár, árangurinn sem kom og byrjaði fyrir rúmu ári síðan, í fyrrahaust. Kostnaður ríkissjóðs í heild, beinn, var 350 milljarðar vegna þessara hluta á síðustu árum. Þetta er ástæðan fyrir því að hér fór verðbólga af stað en árangurinn var klárlega hafinn upp úr sumri 2024. Það er það sem við verðum að hafa í huga og það er gríðarlega mikilvægt í þessari umræðu (Forseti hringir.) að fólk sé meðvitað, þingmenn og aðrir í þessu landi um hvað hafi gerst í landinu þegar við ræðum efnahagsmál þjóðarinnar. (Forseti hringir.) Það er barnaskapur hvernig þetta er flutt hér af meiri hlutanum í þinginu, hvernig talað er um þessa hluti.
(Forseti (ÞSV): Forseti ítrekar tilmæli sín til allra hv. þingmanna að hér fer ekki fram 4. umræða um það frumvarp sem hér er til afgreiðslu.)