157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[12:55]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég hyggst koma hérna upp um atkvæðagreiðsluna og gera grein fyrir því að ég hyggst greiða atkvæði með þeim breytingum sem við erum að fara að afgreiða hér. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræddi hér um sósíalisma og hvata. Ég hef sjálfur ekkert á móti því að fólk græði á því að eiga húsnæði og leigja það út. En í kerfinu eins og það er í dag er einmitt til staðar hvati til þess að fjárfesta frekar í þeim kosti, frekar í steypu en öðrum fjárfestingarkostum og um það snýst þetta fyrir mér. Af hverju ættum við sérstaklega að vera að beina fólki í þann fjárfestingarkost frekar en í aðra fjárfestingarkosti, t.d. í atvinnulífinu? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)