skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Það er alveg 100% að hv. þm. Sigmar Guðmundsson verður aldrei fenginn til að skrifa hagsögu Íslands. Ég ætla ekki að leiðrétta þær rangfærslur allar. Þær eru hlægilegar í besta falli. En förum aðeins yfir ábyrgðina, virðulegur forseti, af því hv. þingmaður talaði um ábyrgðina og segir að hér sé markmiðið að lækka vexti og taka á verðbólgu. Hvað gerir hv. þingmaður og stjórnarliðið, Viðreisn? Aukningin í ríkisútgjöldum er 143 milljarðar. 143 milljarðar. Skattahækkanirnar. (Gripið fram í.) — Já, fyrirgefðu, hv. þm., skáldið, Sigmundur Ernir Rúnarsson og til hamingju með að vera á toppnum þar. Skattahækkanir, 30 milljarðar. Lofuðu að hækka ekki skatta. Hvar er ábyrgðin? Skuldaaukningin á næsta ári, 82 milljarðar. Hvar er ábyrgðin?
Virðulegur forseti. Af því að ég spurði að því í gær í umræðunni. Þið lofuðuð nefnilega eftir kosningar. (Forseti hringir.) Þið voruð með skrýtna húsnæðispakkann sem er aðallega skattapakki. Hvar er séreignarleiðin sem þið — Ja, nú hrynur allt undan ríkisstjórninni (Forseti hringir.) þegar maður spyr að því. Hvar er séreignarleiðin sem þið lofuðuð? Hrunið er algjört. En þið lofuðuð, munið þið, séreignarleiðinnni? (Forseti hringir.) Hvar er hún?