skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Við getum eflaust komið hér fram í allan dag og bent hvert á annað, hver hefði getað gert betur og hvor er að gera betur. Það skilar hins vegar ekki heimilum landsins betri niðurstöðu. Það sem er liðið er liðið og það er mikilvægt að við horfum fram á við. Það sem við erum einfaldlega að benda á í Framsókn er að þessar skattahækkanir sem verið er að leggja hér til og fara í atkvæðagreiðslu um og umsagnir benda á muni verða til þess að verðbólga hækki hugsanlega um allt að 1%.
Planið hjá hæstv. ríkisstjórn var að létta álagið á heimilunum en hér er raunin allt, allt önnur þegar við sjáum fjárlögin. Það blasir bara við allt önnur mynd. Það má kalla þetta ýmsum orðum, fylla glufur í kerfinu, leiðréttingu eða hvað sem er en við viljum vara við því að hér er verið að taka stór skref í aðför að heimilum í landinu.