157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:02]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin ætlar sér að skila hallalausum fjárlögum árið 2027. Metnaður síðustu ríkisstjórnar lá í árinu 2028. Með því að skila hallalausum fjárlögum 2027 erum við fyrst og síðast að hugsa um atvinnulífið í landinu og heimilin og fjölskyldurnar í landinu. Við erum búin að upplifa núna samfellt vaxtalækkunarferli. Við erum búin að upplifa núna lækkandi verðbólgu og við eigum að fagna því. Jú, jú, við getum farið í söguna og nefnt viðburði sem við sannarlega tókum öll þátt í að reyna að taka á. En mér finnst líka sérkennilegt, ekki síst af Sjálfstæðisflokknum, að þora ekki að viðurkenna það að hallarekstur ríkissjóðs var byrjaður löngu fyrir Covid, löngu fyrir Grindavík og það eru til margar ræður hér þar sem við í Viðreisn vöruðum við þessum hallarekstri. Það er ekki hægt að skila óábyrgum fjárlögum eins og var gert þá. Ég veit að sannleikanum verður hver sá reiðastur en þannig er það. Það er rétt sem hefur komið fram hjá hv. þm. Sigmari Guðmundssyni að vextir voru ekki bara hærri hér, þeir voru lengur hærri hér en annars staðar í Evrópu. Verðbólga var hærri og lengur hærri hér en annars staðar í Evrópu. Við höfum náttúrlega alltaf verið að benda á að það þyrfti að fara í ákveðin verkefni. Er auðvelt að vera í pólitík? (Forseti hringir.) Nei, við erum að fara í þessi verkefni m.a. af því að það er samstaða um það að fara í þessi erfiðu verkefni, (Forseti hringir.) tækla þau í þágu þjóðarinnar, í þágu íslenskra heimila og fyrirtækja í landinu.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörk.)