157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:04]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Það er raunalegt að hlusta á skýringar hæstv. ríkisstjórnar, ráðherra og þingmanna meirihlutaflokkanna. Loforðin voru gefin. Loforðin er verið að svíkja. Menn gera sér ekki grein fyrir því hvað gekk hér á á sínum tíma. Hverjir buðu alltaf betur í tillögum okkar í Covid? Það var Viðreisn. Þeir vildu setja meira fjármagn út úr ríkissjóði, miklu meira, ganga miklu lengra. Auðvitað voru afleiðingarnar augljósar. Við vissum alveg hvert við vorum að fara en við vissum líka alveg hvernig við ættum að greiða leiðina út úr þessu. Það var hér þróun nákvæmlega í þá átt að hér yrði mjúk lending sem ekki myndi auka álögur á heimilin, ekki myndi eyðileggja fjárfestingar fyrirtækja í samfélaginu. Við myndum byggja áfram á aukinni verðmætasköpun, sanngjarnara samfélagi og mjúkri lendingu. Það var það sem við vorum að ná. Lendingin sem er verið að boða hér af hæstv. ríkisstjórn (Forseti hringir.) með því að reyna að fylla í allar skattaholur verður hörð lending, erfið lending, vond lending fyrir íslenskt samfélag, íslensk fyrirtæki og íslenskan almenning.