skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Já, Viðreisn kemur hér upp og útskýrir hvað veldur þessum erfiðleikum. En staðreyndin er sú, frú forseti, staðreyndin er einfaldlega sú að ríkisútgjöldin eru allt of há og það þarf að taka á þeim. Viðreisn er fyrirmunað að taka á ríkisútgjöldunum sem er svo nauðsynlegt að taka á. Eina leið Viðreisnar er að hækka skatta. Viðreisn, sem gaf sig út fyrir að vera borgaralegur flokkur, er orðin hreinræktaður vinstri flokkur: Hækka skatta, finna nýja skatta, eina leiðin út úr vandanum, í stað þess að taka á útgjaldahlið ríkisfjármálanna. Þeir geta það ekki, þeir eru gengnir í lið með vinstra liðinu.