skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Ég ætla nú ekki að taka þátt í þessum söguskýringum. Mig langar hins vegar, frú forseti, að fjalla um atkvæðagreiðsluna sem fer fram hér á eftir og bara rétt að minna á það að við erum að fara að hækka skatta á venjulegt fólk sem er að leigja út íbúðir. Það mun hækka leiguna, svo einfalt er það. Annaðhvort dregur fólk íbúðirnar út úr leigunni og þá eykst eftirspurnin eða það bara hreinlega hækkar leiguna. Þetta er hin raunverulega jafnaðarmennska hæstv. ráðherra Kristrúnar Frostadóttur.