157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:10]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Við greiðum atkvæði um það að fallið verði frá 50% skattahækkun á leigutekjur, fallið verði frá henni. Hér segist hæstv. ríkisstjórn vera að berjast gegn vöxtum og verðbólgu. Það stendur einfaldlega í gögnum þessa máls, öllum gögnum þessa máls, að þessi skattahækkun upp á 50% mun hækka verðbólguna, mun fjölga samningum sem fara fram hjá kerfinu og greiða ekki skatt. Þessi skattahækkun, nái hún í gegn, leggst beint á heimilin í landinu með því að húsaleiga mun hækka, og það stendur líka í gögnum málsins, verðbólga hækkar og þar á meðal lán heimilanna.