skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Það hefur stundum gerst í lagasetningu að afleiðingar eru ófyrirséðar. Lagasetning er ekki alltaf fullkomin, því miður. En hér býr svo við að í sjálfri greinargerð málsins segir, í sjálfri greinargerðinni, að leiguverð muni hækka. Það segir þar og það er staðfest með mörgum umsögnum þess eðlis þannig að þetta liggur fyrir. Þetta mun auka verðbólgu. Hér er verið að taka þessa ákvörðun með galopin augu. Þetta liggur allt fyrir, leiguverð mun hækka, verðbólga mun aukast. Samt sem áður á að keyra þessa breytingu í gegn, þannig að fyrir þá hv. þingmenn sem vilja ekki hækka leiguverð á almenning í landinu er í boði að styðja þessa tillögu okkar Sjálfstæðismanna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)