157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
257. mál
Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni enn ein skattalækkunartillagan fyrir fjölskyldurnar í landinu og ég bara fagna henni sérstaklega. Ég fagna því að hér sé verið að koma til móts við alls konar fjölskyldur, venjulegar sem óvenjulegar, þær sem eiga börn. Þessi tala hefur staðið í stað frá 2013 og það er fagnaðarefni að hún skuli nú fara upp.