157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:20]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Þeir sem eru á móti þessari breytingu gætu þurft að skýra fyrir þingheimi hvers vegna fjármagnstekjur eru ekki jafnar. Hér er það þannig að þú færð afslátt af fjármagnstekjuskatti ef þú færð þær fjármagnstekjur af því að leigja húsnæðið þitt. Þú færð ekki þann afslátt annars staðar. Við þurfum auðvitað bara að velta því fyrir okkur af hverju þessi ívilnun er til staðar í kerfinu, sem er sú að þú borgir 11% skatt af þínum leigutekjum á meðan einhver annar, sem fjárfestir til að mynda í litlu fyrirtæki, í verðbréfasjóði eða í öðrum hlutum kerfisins, þarf að borga 22% skatt. Hér er oft rætt af ákveðnum flokkum um einfalt skattkerfi, sanngjarnt skattkerfi, gagnsætt skattkerfi. Það er enginn að banna fólki að leigja út sitt húsnæði. Það er hins vegar bara verið að velta fyrir sér hvaða hvatar eru í kerfinu, af hverju sumir greiða hærri fjármagnstekjuskatt en aðrir. Þetta snýst ekki um að mega ekki græða. Spurningin er bara: Af hverju máttu græða meira á leigutekjum þínum en af öðrum fjárfestingum? Ég segi já. Þetta er góð breyting.