skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Forseti. Hér kom hæstv. forsætisráðherra og vildi skýringu, að við ættum að skýra fyrir þingheimi af hverju það væri sanngjarnt að það væri lægri virk skattbyrði á fjármagnstekjuskatt þarna. Ég skal útskýra það. Ástæðan fyrir því er sú að þegar þú leigir út eigið heimili tímabundið, eigin fasteign — þessu var komið á til að gæta jafnræðis. Þeir sem geta verið með fasteign í félagi borga vissulega 22%, þeir geta notað kostnað á móti leigutekjum. Þess vegna var þessu komið á. Þess vegna er þetta sanngjarnt. Það sem þið eruð að gera núna er að gera fólki ókleift að leigja út eigið húsnæði. Það getur ekki sett eigið heimili í félag. Þetta var sniðugt á sínum tíma og að mínu mati eru það mistök að breyta þessu af því að þetta er sanngirnismál.