157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:23]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Hér er verið að búa til nýtt erfiðleikastig fyrir ungt fólk sem vill eignast húsnæði. Það leigir það kannski út í tvö, þrjú eða fjögur ár til að koma sér upp húsnæði, greiða það niður. Forsætisráðherra talar um ívilnun, kallar þetta eina af þessum glufum. En þetta er skattahækkun. Þetta er skattahækkun á ungt fólk. Þetta er líka skattahækkun á eldra fólk sem á kannski aukaíbúð í húsinu sínu. Í stóru myndinni er það sem boðað er hér dæmi um drastíska breytingu þar sem fyrirsjáanleikinn er enginn. Ungt fólk sem hefur keypt íbúð á síðustu mánuðum eða misserum — það eru ákveðnar forsendur á bak við það sem verið er að skemma. Það er verið að brjóta þessar forsendur. Þetta er hreint og beint ein af þessum nýjustu skattahækkunum sem verið er að boða um þessi áramót, ein af fjöldamörgum. Ég held að ríkisstjórnin ætti að setja upp (Forseti hringir.) svona mælaborð á stjórnarráðsvefinn yfir allar þessar skattahækkanir og hvernig þær koma niður á ungu fólki, eldra fólki, (Forseti hringir.) fólki með miðlungstekjur, millistéttinni. Það væri bara hið besta mál, til að fólk átti sig á þessari stöðu sem er að verða til í ríkisstjórninni. (Forseti hringir.) Þingmaðurinn segir nei.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörkin.)