skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Það er áhugavert að fylgjast með og hlusta á umræðurnar um þetta mál. Þegar ég starfaði á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar þá var það yfirlýst skoðun okkar að koma þyrfti í veg fyrir að skammtímafjárfestar tækju yfir húsnæðismarkaðinn. Ein af þeim tillögum sem við ræddum var að draga úr þeim ívilnunum sem þessi fjárfestingarflokkur sannarlega nýtur. Fyrir okkur sem höfum verið mikið að vinna í húsnæðismálum, höfum fylgst með þróun þessara mála og sérstaklega leigumarkaðinum síðustu ár, þá er mikil hækkun leiguverðs fyrst og fremst drifin áfram af skorti en ekki kostnaði. Hvað gerðist þegar vextir lækkuðu niður í sögulegt lágmark? Hvað gerðist þá? Húsaleigan hækkaði. Hvað gerðist þegar bankaskatturinn lækkaði 2019? Þjónustugjöld hækkuðu, útibúum var lokað, fólki var sagt upp — methagnaður. Það var auðvitað drifið áfram af fákeppni. Leiguverð og ástæðan fyrir háu leiguverði er fyrst og fremst drifin áfram af skorti. Engu öðru. Hv. þingmaður segir já.