skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Í ljósi þess sem á undan er gengið ætla ég að byrja á því að segja nei, þannig að það verði algerlega óumdeilt. Hér er um að ræða vont frumvarp, vonda grein í þessu frumvarpi. Hæstv. forsætisráðherra kom hingað áðan og spurði: Hverjir græða? Ég skal segja ykkur hverjir tapa. Það eru leigjendur og það er ungt fólk sem er að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið eða komast í öruggt skjól. Þetta mun ekki gera neitt annað en að hækka leiguverð, eins og segir berum orðum í greinargerð frumvarpsins. Þetta mun hækka leiguverð. Hvað þýðir hækkandi leiguverð? Það þýðir hækkandi verðbólgu eins og segir sömuleiðis í greinargerðinni. Með þessu frumvarpi erum við ekki aðeins að gera það erfiðara fyrir ungt fólk að koma sér inn á leigumarkaðinn heldur erum við líka að stuðla að því að verðbólga fari hækkandi eins og reyndar er gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi hæstv. ríkisstjórnar.