skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegi forseti. Ég segi nei við þessari skattahækkun á fólkið í landinu. Ég segi nei eins og Öryrkjabandalag Íslands bað okkur um í umsögn um þetta mál. Ég get upplýst hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra um það atriði sem þær komu hér upp og fjölluðu um, virtust greinilega ekki hafa skoðað sitt eigið mál til enda, að ég fór vel og ítarlega yfir það í ræðu minni hér um þetta mál í gær, og eins og hefur komið fram hérna, af hverju skattprósentan er öðruvísi. Ef þetta voru rökin sem hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra segja að séu fyrir þessari tillögu þá veit ég ekki af hverju var bara farið niður í 25% frítekjumark. Af hverju fóruð þið ekki bara alla leið niður í 0? Það hefði ekki komið á óvart frá þessari ríkisstjórn. En þetta sendir reikninginn á fólkið í landinu. Þetta er (Forseti hringir.) ekki að fara að ýta undir fjárfestingar í atvinnulífi, atvinnulífi sem þessi ríkisstjórn setur hvern einasta stein í götu fyrir sem hún getur. (Forseti hringir.) Af hverju ætti fólk að fara að fjárfesta í atvinnulífinu ef stjórnvöld eru alltaf að setja stein í götu atvinnulífsins? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)