157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
257. mál
Frú forseti. Svo það gleymist ekki þá segir þingmaðurinn nei. Ég vil vekja athygli á því sem ég kom stuttlega inn á hér áðan að hér er að birtast jafnaðarmennska hæstv. forsætisráðherra, Kristrúnar Frostadóttur, því að þetta mun hækka leiguverð. Ég tel líka ástæðu til að benda hæstv. ráðherra, Ingu Sæland, á að lesa umsögn Öryrkjabandalagsins þar sem sterklega er hvatt til þess að gera þetta ekki.