157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:36]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Ég segi nei við þessari skattahækkun ríkisstjórnarinnar, enn einni skattahækkuninni. Það er ekki bara Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur bent á að þetta sé vond breyting sem ríkisstjórnin er að leggja hér til heldur hefur fjöldi umsagnaraðila lagst gegn þessari skattahækkun. Þar má nefna Hagsmunasamtök heimilanna, Öryrkjabandalag Íslands ásamt Samtökum atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu og Viðskiptaráði Íslands. Þegar svo breiður hópur, sem er nú ekki alltaf sammála, stendur saman þá ber ríkisstjórninni að hlusta. Sérstaklega þegar varað er við beinum áhrifum á leiguverð. Meiri hlutinn í nefndinni segir að þetta sé líklega hófleg breyting. Hófleg fyrir hvern? Eru skattahækkanir hóflegar fyrir fólkið í landinu eða er þetta hófleg skattahækkun fyrir skattahækkanabrjálaða ríkisstjórn? Gerum leigumarkaðinn ekki verri, virðulegi forseti. Þingmaður segir nei.