157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
257. mál
Virðulegur forseti. Ég get tekið undir markmið ríkisstjórnarinnar er varða það að við séum að beina fjárfestingum annað. Ég óttast hins vegar það sem hefur verið komið inn á hér í öðrum ræðum, að við séum með þessu að hækka leiguverð og það bitni á þeim hópum sem við eigum að vera að sinna betur í okkar samfélagi. Ég mun því sitja hjá í þessari atkvæðagreiðslu.