157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:38]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Það stendur í frumvarpinu sjálfu að við þessa breytingu muni leiguverð hækka. Að öllum líkindum mun þetta auka verðbólgu. Þetta er óskiljanleg jólagjöf frá ríkisstjórninni til almennings í landinu. Ég vil ekki stuðla að því að hækka leiguverð á vinnandi fólk í þessu landi sem er að reyna að lifa sinn hvunndag eftir bestu getu. Ég vil ekki gera þeim það erfiðara fyrir. Ég vil ekki hækka leiguverð. Frú forseti, ég segi: Nei, nei, ekki um jólin.