skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Ég segi nei við þessari skattahækkun. Eins og komið hefur fram mun hún verða til þess að leiguverð hækkar fyrir þá sem síst skyldi og gerir ungu fólki enn erfiðara fyrir að komast inn á húsnæðismarkaðinn og nógu er það nú erfitt fyrir. Þetta mun hugsanlega líka auka verðbólgu á heimilin í landinu og þetta er jólagjöf hæstv. ríkisstjórnar.
Mig langar að vitna í skilaboð sem ég fékk á meðan á þessari umræðu stóð frá ungri konu sem hefur undanfarin ár lagt allan sinn sparnað fyrir til að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Í þeim stendur, með leyfi forseta:
„Hvað er í gangi þarna í þinginu hjá ykkur? Þetta er fáránlegt. Ég verð gjaldþrota.“
Það má eflaust brosa út í annað en þarna er ung kona að hafa verulegar áhyggjur af þessu máli, af þessari skattahækkun, og spyr sig: Af hverju er ég að þessu, af hverju er ég að standa í þessu? Og af hverju er hæstv. ríkisstjórn að vinna gegn því að ég geti eignast mitt eigið húsnæði? Þetta er í boði hæstv. ríkisstjórnar. Þingmaður segir nei.