157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:41]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Samkvæmt áætlunum Samtaka atvinnulífsins, og undir það tekur verkalýðsforystan, munu vörugjöld á ökutæki og hækkun á krónutölugjöldum hækka neysluvísitöluna um 0,3%. Þessi aðgerð sem við ræðum hér mun líklega hækka neysluvísitöluna um 0,65–0,75%, sem þýðir að neysluvísitalan er að fara að hækka um 1%. Það þýðir að verðtryggðar skuldir heimilanna munu hækka um 20 milljarða. Það eru ekki bara leigjendur sem munu sitja eftir með sárt ennið heldur munu líka heimilin í landinu sitja uppi með miklu hærri skuldir, 20 milljarða.

Ég spyr, virðulegur forseti: Hvenær ætlar þessum óumbeðnu jólagjöfum ríkisstjórnarinnar til fólksins í landinu að linna? Þingmaðurinn segir nei.