skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Hér höfum við gott dæmi um það þegar þingið virkar. Við höfum fengið mikið af umsögnum, hlustað á þær og tekið tillit til þeirra og meiri hluti nefndarinnar leggur til að þessar greinar er varða erfðafjárskattinn verði felldar út. Ég styð það heils hugar ekki síst vegna þeirra áhrifa sem breytingarnar hefðu haft á bændur þessa lands. Síðan tek ég jafnframt heils hugar undir með hv. þm. Jóni Gnarr að ég væri mjög til í umræðu um hvort erfðafjárskattur Sjálfstæðisflokksins sé yfirhöfuð góður skattstofn til að hafa sem hluta af okkar skattkerfi. Vonandi fáum við tækifæri til að eiga þá umræðu hér í þingsal í góðu tómi.