157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:51]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Ég fagna því að þessar greinar, 11. og 12. gr., falli brott vegna þess að þetta var alveg afleitt, þetta var mikið flækjustig. Fyrir utan að vera skattahækkun þá var þetta bara ógerningur. En ég vil taka undir með hv. þm. Jóni Gnarr og Ingvari Þóroddssyni þess efnis að erfðafjárskattur mætti bara falla alveg brott. Þetta er ósanngjarn skattur og ég legg því til að á nýju ári munum við taka saman höndum og koma með þingmannamál þess efnis að erfðafjárskattur verði 0. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)