157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:52]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni einn pínulítill sigur stjórnarandstöðunnar í að hafa náð að bæta aðeins málin og gera lífið betra fyrir fólkið í landinu og ekki síst bændur. En það sem ég vil sérstaklega fagna eftir að hafa heyrt ræður hv. þingmanna Jóns Gnarr og Ingvars Þóroddssonar í Viðreisn og síðan þingmanna Miðflokksins er að hér er kominn þingmeirihluti fyrir því að afnema erfðafjárskattinn í eitt skipti fyrir öll. Nú skulum við ekki bara tala, nú skulum við láta þingmeirihlutann ráða og afnema erfðafjárskattinn í eitt skipti fyrir öll á næsta ári.