157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[13:58]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Þarna er verið að bæta við heimild, sem er reyndar ekki ný í tollalögum, ráðherra til að taka upp sérstakar verndarráðstafanir af ákveðnu tilefni. Nú er verið að bæta við enn einu slíku tilefni. Ég hef svo sem ekki athugasemdir við að það verði gert en það sem vekur áhyggjur mínar í þessu máli er það að ráðherra sem hefur þarna ákveðið vald, og það má deila um hvort það sé lagasetningarvald eða skattlagningarvald, en tíminn sem hann fær til að leggja þetta á, nýja tolla, er að mínu mati allt of langur, fjögur ár. Það er reyndar ekkert nýtt, það hefur verið í lögum. En þetta er auðvitað allt of langur tími sem ráðherra er gefin heimild til að fara með slíkt vald sem Alþingi á með réttu að hafa.