157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[14:01]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Ég get tekið undir með hæstv. utanríkisráðherra að tilgangurinn sé góður. Tilgangurinn með því að verja íslenska hagsmuni er alltaf góður. Hins vegar kom fram hjá umsagnaraðilum, bæði hjá þeim sem voru með og á móti þessu, að það þyrfti að passa að þetta standist stjórnarskrána. Það var vafi á því af því að við erum mögulega að gefa frá okkur fjárveitingavald og við viljum ekki að það komi upp sú staða að þessi lög standist ekki, það sem við erum að gera hér. Þess vegna held ég að það væri gott að þetta verði rýnt enn betur og komið þannig í kring að það sem við samþykkjum hér standist.