157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[14:05]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Við í Framsókn tökum undir breytingartillögu hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur. Það er ekki tilviljun að það sé tollvernd á landbúnaðarafurðum. Tollvernd er notuð til að verja innlenda framleiðslu og það er líka eðlilegt þegar vantar inn á markaðinn að það sé liðkað til. Þess vegna þarf þessi tillaga að vera til staðar en við verðum alltaf að hafa það í huga að þegar innlend framleiðsla er nægjanleg þá eigum við að halda tollverndinni. Það er Alþingi alveg í lófa lagt að meta það ár frá ári hvernig staðan er. Staðan er þannig núna og hættan er sú að ef þessi breytingartillaga hv. þingmanns verður ekki samþykkt þá getur það verið náðarhögg fyrir suma innlenda framleiðendur á kartöflum.