skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að við séum að jafna kostnað þegar kemur að flutningi og dreifingu raforku. Það er lykilbyggðamál. Hér er verið að taka ákveðið skref. Hér er, að mér sýnist, verið að vísitölutengja upphæð. Það er jákvætt en það er músaskref í þeirri vegferð. Við þurfum að gera miklu betur þegar kemur að þessu máli og það er eitthvað sem þingheimur ætti að geta sameinast um. Samhliða verður hæstv. ríkisstjórn að horfa á lagahliðina því það er ekki nóg að hækka þessa tölu ef við erum ekki að koma í veg fyrir frekari gjaldskrárhækkanir á móti. Ég skora því á hæstv. ríkisstjórn að hafa hugrekki til að stíga stærra skref og sömuleiðis að horfa á lagarammann og passa upp á að þau jaðartilfelli sem um er að ræða, sem geta t.d. verið garðyrkjubændur sem búa innan þéttbýliskjarna, lendi ekki á flæðiskeri í þessum breytingum. Þetta er því jákvætt. Þetta er hænuskref og við þurfum að gera miklu betur. Ég segi já.