skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Við í Framsókn segjum að sjálfsögðu já við þessu litla skrefi sem meiri hlutinn er farinn að viðurkenna að er lítið skref, smáskref, hefur horfið frá þessum stórkarlalegu yfirlýsingum um fulla jöfnun sem þeir væru nú þegar búnir að framkvæma. Þetta er afraksturinn. Eina leiðin, svo ég komi nú með tillögu að lausn fyrir meiri hlutann, til að jafna að fullu dreifikostnað rafmagns á Íslandi er að Ísland sé eitt gjaldskrársvæði. Það er eina leiðin. Það höfum við í Framsókn talað fyrir og það munum við styðja. Það er eina leiðin til að jafna að fullu dreifikostnað rafmagns úr auðlind sem við eigum sameiginlega.