157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[14:15]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Forseti. Í síðustu viku voru 240 lítrar af dísilolíu brenndir til að tryggja raforku heima á Vestfjörðum vegna bilunar. Þetta tengist þessu máli ekki beint en mig langaði bara að vekja athygli þingheims á því. Vinkona mín sendi mér rafmagnsreikninginn sinn fyrir síðasta mánuð og hann hljóp á 97.000 kr. Ég spurði hana hvað hún væri búin að greiða það sem af væri þessu ári. Svarið var: 892.000 kr. Þetta er á Vestfjörðum. Forseti, það eru að koma jól. Ég ætla heim og taka þá áhættu að elda jólamatinn. Það verður vonandi ekki með dísilolíu heldur frekar með góðri ólífuolíu, en við þurfum að tryggja fulla jöfnun. Það er stórt verkefni sem við stefnum að. Þetta er lítið skref og ég styð það.