157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[14:16]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta langt. Ég styð þetta skref að sjálfsögðu þótt lítið sé. Það er alger óþarfi að vera með einhverja neikvæðni í garð þessa skrefs eingöngu vegna þess að það er lítið því að við munum taka fleiri skref. Mér heyrist vera mikill samhljómur um það hér í þingsal að við ætlum að ná fullri jöfnun raforkukostnaðar svo að hv. þm. María Kristinsdóttir eða fleiri þingmenn í þessum sal þurfi ekki að fá myndir af rafmagnsreikningum upp á 97.000 kr., hvort sem það er á Vestfjörðum eða annars staðar.