skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Ég get tekið undir það með þingmanninum að þetta hefur skipt máli og hefur verið gott; hefur kannski sérstaklega skipt björgunarsveitirnar miklu máli. Ég heyrði bara af þessu máli í morgun. Okkur vantar að fá betri upplýsingar um hversu miklu þetta skiptir fyrir ríkissjóð, hvað þetta eru stórar upphæðir. Ég hef líka verið í samskiptum við fjármálaráðherra um þetta mál og hann fullvissar mig um að þetta verði skoðað sérstaklega við vinnu við endurskoðun á virðisaukaskattslögum sem er fyrirhuguð. Við höfum líka verið í samtölum við Rauða krossinn og björgunarsveitirnar um frekari styrki frá ríkinu til þeirra. Ég tel því rétt að bíða með það að framlengja þetta. Þær halda áfram 60% af endurgreiðslunni en bíðum með að fara í frekari styrki til þeirra þangað til því samtali sem er í gangi er lokið.