157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[14:20]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Frú forseti. Þetta er góð tillaga. Þetta hefur gengið vel. Á síðasta kjörtímabili og jafnvel á kjörtímabilinu þar á undan var einmitt unnin heilmikil vinna í því hvernig við gætum styrkt almannaheillafélögin, komið til móts við þau. Hv. þm. Willum Þór Þórsson tók þá virkan þátt í þeirri vinnu og átti mikinn þátt í því sem síðar varð í þeim lagabreytingum sem við gerðum. Þetta var ein þeirra og þetta hefur skipt miklu máli. Ég hvet meiri hlutann til að taka mjög svo göfugmannlegu tilboði hv. þm. Jóns Gunnarssonar um að hann dragi sína tillögu til baka, ef hans persóna þvælist fyrir tillögunni, og meiri hlutinn flytji hana sjálfur því. Ef það verður ekki, og vísa ég hér í atkvæðaskýringu hv. þm. Víðis Reynissonar, þá verður voðalega lítið gert á næsta ári. Þá munu menn bíða eftir virðisaukabreytingum eða hugsanlega einhverjum stuðningi, styrkjum, frá ríkisstjórninni. Þá verður bara stopp í þessari uppbyggingu. Við í Framsókn styðjum því þetta mál.