157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[14:22]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Við vorum að enda við að stíga mjög jákvætt skref í raforkumálunum og sýndum þar mikla samstöðu. Hér er á ferðinni mál af ekki ósvipuðum toga, almannaheillamál. Eins og komið hefur verið inn á eru almannaheillafélögin og björgunarsveitirnar hér undir. Þess vegna skil ég ekki af hverju ekki er hægt að standa með þessari góðu tillögu. Mig grunar að persóna hv. þm. Jóns Gunnarssonar sé jafnvel að þvælast eitthvað fyrir þessu frábæra máli við þessa afgreiðslu. Því miður, því að ég átta mig ekki á því, frú forseti, hvernig er hægt að vera á móti þessu. Ég segi já.