skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Ég kem hér upp til að lýsa yfir stuðningi við þessa góðu tillögu hv. þm. Jóns Gunnarssonar og ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd til að taka málið inn á milli 2. og 3. umræðu og skoða þetta því að þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir almannaheillafélögin. Að velta því hér upp að þetta séu gríðarleg útgjöld og kostnaðarauki fyrir ríkissjóð — ég á bara verulega erfitt með að trúa því, virðulegi forseti, að svo sé. Og gleymum því ekki hversu mikilvægt starf þessi félög eru að vinna allt árið um kring. Eru þetta skilaboð okkar, hv. þingheims? Ég bara neita að trúa því að þetta sé jólagjöf Alþingis til almannaheillafélaga á Íslandi. Ég bara neita að trúa því og ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd til taka málið inn og skoða það gaumgæfilega á milli umræðna.