157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[14:24]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Þetta er með verri atkvæðagreiðslum sem ríkisstjórnin stendur að, myndi ég segja. Fjöldinn allur af almannaheillafélögum, og ekki síst björgunarsveitirnar í öllum landshlutum, lagði mikla áherslu á að fá þetta ákvæði inn á síðasta kjörtímabili af því að verið væri að hefja framkvæmdir. Nú eru framkvæmdir á mörgum stöðum í miðjum klíðum. Ég var síðast í morgun að lesa færslu frá björgunarsveitinni á Hornafirði sem er að kappkosta að klára sitt húsnæði. Þessar sömu björgunarsveitir eiga mun erfiðara með að fjármagna sig í dag eftir hærri álögur á atvinnulífið. Allar greinar atvinnulífsins hafa minna fjármagn til að styrkja björgunarsveitirnar og önnur almannaheillafélög. Þá getur ríkisstjórnin ekki einu sinni framlengt ákvæði þar sem gert er ráð fyrir 100% endurgreiðslu á virðisaukaskatti á verkstað í staðinn fyrir 60%. Þetta er svo lítið brot fyrir ríkissjóð en rosalega stórt fyrir almannaheillafélögin sem eru farin af stað. Áfram heldur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að skapa andvökunætur með ákvörðunum sínum hér inni.