157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[14:26]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég vil ekki trúa því að þetta sé einhver pólitísk atkvæðagreiðsla og ég er hryggur yfir því að sjá hvernig þessi atkvæðagreiðsla er að fara hér. Hún gefur okkur þó tækifæri hér á milli 2. og 3. umræðu til þess að skipta um kúrs og í 3. umræðu verðum við hér öll á grænu og styðjum þessa tillögu. Eins og hv. þm. Jón Gunnarsson segir, ef þetta snýst um það að þetta sé ekki hans tillaga heldur tillaga nefndarinnar — hvernig sem að þessu er farið, látum töfluna verða græna fyrir almannaheillafélögin í landinu. Við erum hér stödd rétt fyrir jólin og eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason bendir á er fullt af framkvæmdum í gangi. Það er verið að byggja björgunarmiðstöð á Hornafirði fyrir 400 milljónir í sjálfboðavinnu af fólki sem er alla daga að vinna vinnu sem er lífsnauðsynleg fyrir okkur öll og almannaheillafélögin úti um allt land. Látum þessa töflu ekki verða svona þegar við förum í þriðju atkvæðagreiðslu. Ég skora á ykkur, hv. þingmenn.