157. löggjafarþing — 51. fundur, 17. des. 2025.
skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
257. mál
Ég vil undirstrika að ég segi já við þessu. Mér finnst þetta mál, ef við lesum greinina í heild, undirstrika enn og aftur að það er þessi ríkisstjórn sem er nú starfandi sem er samhent í að klára mál sem síðustu stjórnvöldum tókst ekki. Þetta var vandræðabarn, m.a. ÍL-sjóður, og það var klárað á þessu ári undir forystu fjármálaráðherra, Daða Más Kristóferssonar. Þetta er gríðarlega farsæl lending og sýnir hverju hægt er að áorka þegar samhent ríkisstjórn er í landinu. Ég segi já.