157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[14:30]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil árétta aðeins nánar innihald þessa góða frumvarps og nefna að það nær einnig yfir sorgarleyfi. Fjárhæðir á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof og laga um sorgarleyfi eru þær sömu á hverjum tíma. Fjárhæðir greiðslna eiga við um alla foreldra sem nýta rétt sinn samkvæmt lögunum óháð því hvenær barnsmissir, andvanafæðing, fósturlát eða makamissir á sér stað. Að missa fóstur, að missa barn, er sennilega það versta sem hægt er að hugsa sér að gerist í lífi sérhvers einstaklings. Frumvarpið kveður einnig á um lengingu á leyfi eftir andvanafæðingu í sex mánuði og eftir fósturlát lengist það í þrjá mánuði. Þessar breytingar endurspegla aukinn skilning á því hversu mikil áhrif barnsmissir getur haft á foreldra, bæði líkamlega og andlega.