157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[14:32]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp fyrir hönd Samfylkingarinnar og lýsi því yfir að við styðjum þetta góða mál líkt og við studdum það á síðasta kjörtímabili þegar það var lagt fram. Hér erum við að tryggja það að foreldrar allra barna fái sama rétt óháð fæðingardegi barns og við teljum það gott réttlætismál.